Foreinangruðu Twin Pex-rörin eru frá Danska framleiðandanum Logstor. Uppgefinn endingartími á pexinu er 30 og miðað er þá við stöðugan 80°c hita. Endingartíminn getur orðið lengri ef ekki er keyrt á hámarks hitastigi og þrýsting. Logstor A/S hefur verið frumkvöðull á heimsvísu í framleiðslu foreinangraðra stál- og pexröra fyrir hitaveitur í meira en hálfa öld.
Pex twinrörin eru til 6 bar í stærðum 20-20 mm til 63-63 mm í einangrunarflokki 1 í 100m rúllum. Hægt er að fá rörin í stærðunum 20-20 mm til 50-50 mm í einangrunarflokki 2 í 100 m rúllum. Ísrör er með á lager 20-20/110 upp í 50-50/160.
Allt foreinangrað pex er A pex.
|