Heimasíða Ísrörs hefur verið endurnýjuð og sýnir vel þá auknu þjónustu og vöxt í vöruvali okkar.
Ísrör hefur þjónað orkuveitum og verktökum um land allt frá stofnun árið 1992 og boðið upp á vörur tengdum lagningu á heitu vatni og nú einnig bætt við vörum tengdum lagningu á köldu vatni.
Helstu vöruflokkar eru foreinangruð pex- og stálrör ásamt tengiefni frá stærsta framleiðanda í heimi Logstor A/S.
Bjóðum að auki upp á Haelok pressutengi og vélar til að tengja saman stál hitaveiturör.
Þá bjóðum við upp á varúðarborða og hlífðarborða til að verja lagnir í skurðum.
Boðið upp á handhægar sterkar og léttar jarðvegsmottur til að hlífa viðkvæmum verksvæum og opnanleg hlífjarrör til að nota á vinnusvæðum til að verja lagnir þar sem aka þarf yfir á bílum og vinnuvélum.
Okkar vinsælu gulu sveigjanlegu ídráttarrörin bjóðum við ávallt upp á og einnig klofnu tvöföldu ídráttarbarkana.
Ísrör býður vandaða útiskápa úr galvaniseruðu stáli og duftlakkaða. Við höfum selt þessa skápa frá árinu 2002. Helstu tegundir eru Hitaveituskápar, dælu-lagna- og útiskápar, gasskápar og svo ljósleiðaraskápar.
Nýlega bætti Ísrör við sig rörum og tengiefni fyrir lagningu á köldu vatni og eykur þannig enn meira þjónustu sína við okruveitu, vatnsveitu og verktaka.
Endilega hafið samband
- Við veitum ykkur alla þá þjónustu sem mögulegt er
- Við bjóðum eingöngu upp á gæða vörur
- Við miðlum til ykkar allri þeirri þekkingu sem við búum yfir
Þjónustu – Gæði – Þekkingu, allt þetta færðu hjá Ísrör