Suðutappi

Ísrör - Suðutappi

Suðutappar eru til að loka hólkum eftir að búið er að frauða í þá eða til að gera við lítil göt á kápum röra. Tapparnir eru hitaðir í tappasuðuvél þannig að þeir verða seigfljótandi ásamt efninu sem þeir eiga að þétta og er síðan stungið í gatið og haldið þar til þeir hafa kólnað.

Hægt er að fá tvær stærðir tappa 35mm og 43mm. 35mm tappi er tappastærðin sem algengast er að nota á Íslandi.

Tappar eru lagervara hjá Ísrör

 

Vörunúmer
 Suðutappi 35mm  Suðutappi 43mm

Þéttiflipi

Ísrör - Flipi

 

Þéttiflipi er til að setja yfir lítil göt á kápu eða til að leggja yfir suðutappa sem auka þétting eftir að búið er að sjóða tappann.

Þéttiflipar eru lagervara hjá Ísrör.

 

Vörunúmer
 Þéttiflipi  

SXB beygjuhólkur

SXB beygjuhólkur getur komið í staðinn fyrir foreinangrað stálhné. Með SXB beygjuhólknum er hægt að velja þá beygju gráðu sem þarf þ.e milli 0° og 90°. Ekki þarf herpihólk á enda hennar en í hvorum enda er mastik þétting og lím. Frauðað er í hólkinn. Hvor endi hólksins getur tekið 2 kápustærðir þar sem endarnir eru gerðir úr krossbundnu PE efni.

Fáanlegar stærðir eru: Frá 90 mm til 315 mm.

SXB beygjuhólkur er lagervara hjá ÍSRÖR.

 

 

Vörunúmer
SX Beygjuhólkur  90mm (90-77)
SX Beygjuhólkur 110mm (110-90)
SX Beygjuhólkur 125mm (125-110)
SX Beygjuhólkur 140mm (140-125)
SX Beygjuhólkur 160mm (160-140)
SX Beygjuhólkur 200mm (200-180)
SX Beygjuhólkur 250mm (250-225)                 SX Beygjuhólkur 315mm (315-250)

SX-VP breytihólkur

Ísrör - SX-VP breytiholkur

 

SX-VP breytihólkurinn hefur mastik þéttingu á báðum endum. Hólkurinn getur tekið yfir 3 kápustærðir t.d. frá 125-90mm. Frauðað er í hólkinn til einangrunar. Hólkurinn er  með soðnum töppum.

Fáanlegar stærðir eru: Frá 90mm til 355mm.

SX-VP breytihólkar eru lagervara hjá ÍSRÖR.

 

 

Vörunúmer
SX-VP breytihólkur  90-125mm
SX-VP breytihólkur 110-140mm
SX-VP breytihólkur 125-160mm
SX-VP breytihólkur 140-180mm
SX-VP breytihólkur 160-200mm

Viðgerðarborði fyrir Pex Flextra

Ísrör - Viðgerðarborði fyrir pex flextra

 Nitto 57 GO er viðgerðarborði fyrir Pex Flextra. Mjög góð viðloðun og er notað sem innra lag viðgerðar. Ekki þarf að hita borðann. Borðinn er 150mm breiður. Á rúlluni eru 2 metrar.
Nitto 51 er viðgerðarborði sem kemur yfir Nitto 57 GO borðinn er honum til vermdar og er eins og kápa. Ekki þarf að hita dúkinn. Dúkurinn er 150mm breiður. Á rúllunni eru 30,5m.

Nitto 57 GO og Nitto 51 er lagervara hjá Ísrör

 

Vörunúmer
 Nitto 57 GO viðgerðarborði 150mmx2000mm  Nitto 51 viðgerðarborði  150mmx30,5m