| 
 Rafsuðuhnén eru úr PE100 eða PE100RC efni og eru framleidd eftir stöðlum EN1555 og EN12201. 
Rafsuðuhnén eru í suðuklassa SDR11 en hægt er að sjóða þau bæði á SDR11 og SDR17 rör (PE100, PE100RC og PE80). 
Hægt er að sjóða rafsuðuhnén með hvaða suðuvél sem er á tvo vegu: Strikamerki (sem inniheldur allar suðu upplýsingar) og handvirkt (með því að slá inn talnaröðina á strikamerkismiðanum). 
Hné eru lagervara hjá Ísrör. 
 |