Foreinangruðu Pex-rörin frá Logstor eru þeim eiginleikum gædd að þau halda einangrunargildi sínu stöðugu áratugum saman vegna gassperra undir kápu. Uppgefinn endingartími á pexinu er 30 á miðað við stöðugan 95°c hita. •Hátt einangrunargildi •Orkukostnaður í lágmarki. Logstor A/S hefur verið frumkvöðull á heimsvísu í framleiðslu foreinangraðra stál- og pexröra fyrir hitaveitur í meira en hálfa öld og er nú stærst í heiminum á þessu sviði.
Pex twinrörin eru til 6 bar í stærðum 16-16 mm í 63-63 mm í einangrunarflokki 1 í 100m rúllum. Hægt er að fá rörin í stærðunum 16-16 mm til 50-50 mm í einangrunarflokki 2 í 100 m rúllum. Ísrör er með á lager 20-20/90 og 25-25/110.
Allt pex frá Logstor er A pex.
|